Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Tillaga um breyting á 7. gr. starfsreglna um íslensku Þjóðkirkjuna erlendis nr. 1003/2005

Mál númer: 
21
Ár: 
2008
Flutt af: 
Fjárhagsnefnd
Framsögumaður: 
sr. Þorgrímur Daníelsson
Texti máls: 

Við 7. gr. bætist:
Heimilt er að greiða embættiskostnað og annan kostnað en laun í mynt þess lands þar sem viðkomandi prestur starfar.

Greinargerð:
Miklar sveiflur í gengi íslensku krónunnar hafa haft í för með sér umtalsverða skerðingu á launum og öðrum greiðslum til presta í útlöndum.
Ekki er unnt að bæta launaskerðinguna en nauðsynlegt hefur verið talið að leiðrétta staðaruppbætur og embættiskostnað að nokkru. Kirkjuráð hefur þegar lagt til fé af sértekjum Kirkjumálasjóðs í þessu skyni fyrir árið 2008.

Til þess að tryggja eðlilega framtíðarskipan þykir rétt að breyta starfsreglum um þjóðkirkjuna erlendis á þann veg að þær feli í sér ótvíræða heimild til þess að greiða íslenskum prestum í útlöndum embættiskostnað og annan kostnað en laun í mynt viðkomandi lands.
Benda má á að starfsmenn utanríkisþjónustu íslenska lýðveldisins fá staðaruppbætur greiddar í mynt viðtökulandsins.

Eðlilegt má telja að sami háttur sé hafður á með slíkrar greiðslur til presta erlendis enda tengjast störf þeirra yfirleitt starfsemi íslenskra sendiráða.