Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Kirkjuþing 2010 samþykkir megináherslur í skýrslu nefndar um heildarskipan þjónustu kirkjunnar og felur kirkjuráði að fylgja eftir framkvæmd hennar.
Kirkjuþing samþykkir þá framtíðarsýn á starfsháttum kirkjunnar sem felst í samstarfssvæðum sókna, skilgreiningu á grunnþjónustu kirkjunnar og samþættingu við samþykktir um innri málefni kirkjunnar.
Kirkjuþing felur kirkjuráði í samráði við heimamenn að koma á fót samstarfssvæðum um allt land fyrir árslok 2011.
Kirkjuþing felur kirkjuráði einnig að skipa starfshóp til að ljúka stefnumótun um starfsmannahald og leiðtogaþjálfun, jafnt launaðra starfsmanna sem og sjálfboðaliða, í sóknum, prestaköllum, prófastsdæmum og öðrum stofnunum þjóðkirkjunnar. Þá taki starfshópurinn til umfjöllunar hlutverk kærleiksþjónustu í starfi safnaða og stofnana, svo skilgreiningu á störfum.
Hugað verði sérstaklega að heildarsýn í skipulagi og aðgreiningu samstarfssvæða og stjórnunareininga þjóðkirkjunnar.
Sjá málið í heild sinni hér
Sjá lista yfir samstarfssvæði
| Skjöl | Stærð |
|---|---|
| 7. mál 2010.doc | 446.06 KB |
| samsstarfssvæði.xls | 93.5 KB |
Guðmundur Þór Guðmundsson, 18/11 2010 16.36