Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Biskup Íslands flutti framsögu um 4. mál fyrir hönd kirkjuráðs. Þetta mál kemur nú til kirkjuþings öðru sinni eftir umræðu á prestastefnu og víðar.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 14.45
Umræðum um 5. mál, Tillaga til þingsályktunar um áfangaskýrslu um heildarskipan þjónustu Þjóðkirkjunnar var fram haldið í morgun.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 14.36
Upptökur af fyrri umræðu fyrstu þriggja mála þingsins eru komnar inn. Þær má nálgast undir liðnum Upptökur í valdálki til vinstri á forsíðu.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 12.01
Kirkjuþingsmenn fengu góða kynningu á Hjálparstarfi kirkjunnar á fundi í dag. Jónas Þórisson, framkvæmdarstjóri, sagði frá starfinu og dr. Haukur Ingi Jónasson sagði m.a. frá stefnumótun starfsins og breytingum sem hafa orðið á stjórn þess.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 08/11 2009 17.46
Þingfundur hófst kl. 13.30 í dag og var tekið fyrir 5. mál, Tillaga til þingsályktunar um áfangaskýrslu um heildarskipan þjónustu þjóðkirkjunnar. Kirkjuráð lagði málið fram en flutningsmaður var Jón Helgi Þórarinsson. Miklar umræður spunnust um málið og tóku ellefu til máls.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 08/11 2009 17.03
Á kirkjuþingi í dag voru þrjú mál tekin til fyrri umræðu og afgreidd til nefnda. Þetta voru 1. mál, Skýrsla kirkjuráðs, 2. mál, Fjármál Þjóðkirkjunnar og 3. mál, Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 07/11 2009 18.22
Frumvarp til nýrra þjóðkirkjulaga, Hjálparstarf kirkjunnar, staða Þingvallakirkju og nýjar reglur um kjör til kirkjuþings voru meðal þess sem Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, ræddi í ávarpi við þingsetningu. Hann sagði að kirkjuþingsmenn þyrftu að íhuga hvort ekki væri tímabært að allt þjóðkirkjufólk nyti kosningaréttar til kirkjuþings, en ekki eingöngu sóknarnefndarfólk.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 07/11 2009 11.39
„Kirkjuþing að þessu sinni mun vekja með sérstökum hætti athygli á Hjálparstarfi kirkjunnar,“ sagði Karl Sigurbjörnsson í ávarpi sínu við setningu Kirkjuþings í dag. Hann talaði einnig um hlutverk kirkjunnar á tímum efnahagsþrenginga og minnti á mikilvægi þess að hugað væri að siðferðislegum víddum kreppunnar.
Árni Svanur Daníelsson, 07/11 2009 10.09
Kirkjuþing 2009 hefst 7. nóvember í Grensáskirkju. 27 mál eru á dagskrá þingsins.
Hanna Sampsted, 14/10 2009 10.35
Samantektarsíða fyrir fjölmiðla.