Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Kristján Björnsson var framsögumaður í 7. máli sem flutt var af kirkjuráði, tillögu að starfsreglum um prestssetur og aðrar fasteignir þjóðkirkjunnar. Miklar umræður spunnust um málið og tóku 13 til máls, þrír oftar en einu sinni.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 10/11 2009 14.48
Sr. Arna Grétarsdóttir flutti þingmannamál um tillögu að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um presta.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 22.10
18. mál var tillaga til þingsályktunar um fjárstuðning til lista- og menningarmála. Flutningsmaður var sr. Svavar Stefánsson.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 22.05
Sr. Gunnlaugur Stefánsson var framsögumaður í 17. máli Tillaga til þingsályktunar um stefnumótun í málefnum fatlaðra innan kirkjunnar.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 22.03
16. mál Tillaga til þingsályktunar um flutning verkefna út á landsbyggðina var flutt af þremur kirkjuþingsmönnum. Framsögumaður var Gunnlaugur Stefánsson.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 22.02
Halldór Gunnarsson var framsögumaður í 15. máli, tillögu til þingsályktunar um kaup og sölu fasteigna.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 22.01
Jóhann Björnsson mælti fyrir 14. máli, tillögu til staðfestingar á siðareglum vígðra þjóna og annars starfsfólks þjóðkirkjunnar.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 21.47
Sigríður M. Jóhannsdóttir var framsögumaður 13. máls sem var Tillaga til staðfestingar á jafnréttisstefnu kirkjunnar.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 21.14
12. mál Tillaga að starfsreglum um kjör til kirkjuþings var felld í atkvæðagreiðslu í lok fyrstu umræðu. Greiddu 12 atkvæði með og 12 á móti og féll hún á jöfnu.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 20.11
Rætt var um skerðingu á rekstrarkostnaði prestsembætta og prófastsstarfa vegna flutnings 11. máls í dag.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 18.41
Sigríður M. Jóhannsdóttir flutti mál kirkjuráðs nr. 10 sem er Tillaga að starfsreglum um æskulýðsþing kirkjunnar. Líflegar umræður voru um málið.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 18.22
Jóhann Björnsson var framsögumaður um 9. mál: tillögu til staðfestingar á umhverfisstefnu Þjóðkirkjunnar. Eftir framsögu var Ljósaskrefið, handbók Þjóðkirkjunnar fyrir umhverfisstarf í söfnuðum, kynnt.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 18.21
Kirkjuráð flutti mál nr. 8: Tillögu að starfsreglum um Fjölskylduþjónustu kirkjunnar og var Sigríður M. Jóhannsdóttir var framsögumaður.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 18.20
Pétur Hafsteinn, forseti kirkjuþings kynnti 6. mál, Tillögu að starfsreglum um þingsköp kirkjuþings.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, 09/11 2009 15.54
Mér er heiður að ávarpa kirkjuþing árið 2009. Þegar kirkjuþing var haldið í fyrra var það í skugga bankahrunsins. Þá urðu einhver mestu þáttaskil í efnahagslífi Íslendinga frá stofnun lýðveldisins og setja varð neyðarlög til að tryggja brýnustu hagsmuni þjóðarinnar. Enn erum við stödd í eftirleik hrunsins.
Árni Svanur Daníelsson, 09/11 2009 15.49
Samantektarsíða fyrir fjölmiðla.