Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Boðað er til aukakirkjuþings 2010 laugardaginn 7. ágúst næstkomandi kl. 9.00 í Grensáskirkju í Reykjavík. Gert er ráð fyrir því að aukaþingið standi aðeins þennan eina dag.
Til aukaþingsins er boðað samkvæmt heimild í 3. mgr. 1. gr. starfsreglna nr. 949/2009 um þingsköp kirkjuþings. Tilefni þinghaldsins er þörf á afstöðu kirkjuþings til kröfu ríkisvaldsins um 9% niðurskurð fjárframlaga til þjóðkirkjunnar á árinu 2011 vegna aðstæðna í efnahagsmálum landsins.
Kirkjuþing 2009, sem haldið var dagana 7. – 12. nóvember á liðnu ári, staðfesti viðaukasamning um tímabundna breytingu á fjárframlögum frá ríkinu samkvæmt samkomulagi íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar frá 10. janúar 1997, sbr. 60. gr. laga nr. 78/1997 um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. Með samningnum voru framlög ríkisins til þjóðkirkjunnar lækkuð um 160 milljónir króna og framlag til Kristnisjóðs um 9 milljónir króna. Viðaukasamningurinn var undirritaður 10. nóvember 2009 af biskupi Íslands, dómsmála- og mannréttindaráðherra og fjármálaráðherra. Hann var gerður með fyrirvara um samþykki kirkjuþings og Alþingis og var einungis ætlað að gilda fyrir árið 2010. Jafnframt samþykkti kirkjuþing að dómsmála- og mannréttindaráðherra legði af þessu tilefni fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 78/1997. Um þetta má nánar lesa í Gerðum kirkjuþings 2009, bls. 118-119. Af hálfu ríkisvaldsins hefur komið fram að brýn þörf sé á frekari niðurskurði á árinu 2011 og þykir því rétt að kalla eftir afstöðu nýkjörins kirkjuþings til málsins.
Á dagskrá aukaþingsins verður annars vegar rannsókn kjörbréfa og kosning forseta og varaforseta kirkjuþings, sbr. 7. gr. og 1. mgr. 8. gr. starfsreglna um þingsköp kirkjuþings. Hins vegar verða umræður um niðurskurðarkröfu ríkisins fyrir árið 2011 og afgreidd ályktun um afstöðu kirkjuþings. Önnur mál verða ekki á dagskrá. Á þessu aukaþingi verður hvorki kosið til fastanefnda kirkjuþings og kirkjuráðs né annarra þeirra nefnda og trúnaðarstarfa sem kveðið er á um í starfsreglum frá kirkjuþingi, sbr. 11. og 12. gr. þingskapa. Það mun verða gert á reglulegu kirkjuþingi sem kvatt verður saman laugardaginn 13. nóvember 2010.
Fylgiskjal: Boð til aukakirkjuþings 2010 (pdf-skjal)
Pétur Kr. Hafstein, 28/6 2010 11.43