Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is
Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is
Í vor verður kosið til kirkjuþings til fjögurra ára. Fulltrúar á kirkjuþingi eru 29, 17 leikmenn og 12 vígðir menn, þ.e.djáknar og prestar. Kosningarnar verða rafrænar og verða auglýstar sérstaklega.
Um kosningu leikmanna gildir að þjóðkirkjufólk sem uppfyllir skilyrði til að vera í sóknarnefnd í kjördæmi sínu, er kjörgengt til kjörs á kirkjuþing, enda tilnefni sóknarnefnd viðkomandi á sérstökum kjördæmisfundi fulltrúa allra sóknarnefnda kjördæmisins. Kjördæmisfundur ákveður endanlegar tilnefningar til kjörs í viðkomandi kjördæmi.
Til að geta boðið sig fram til kjörs við kirkjuþing 2010 þarf auk þess að uppfylla eftirtalin skilyrði:
1. Að hafa hlotið skírn og vera skráður í þjóðkirkjuna þann 1. febrúar 2010.
2. Að hafa náð sextán ára aldri þann 1. febrúar 2010.
3. Að hafa átt lögheimili í viðkomandi sókn þann 1. desember 2009.
Þeir einir eru í kjöri sem tilnefndir hafa verið af kjördæmisfundi. Kjörstjórn við kirkjuþingskjör boðar þessa kjördæmisfundi sérstaklega, en þeim skal vera lokið eigi síðar en 15. mars 2010. Kosning fer fram í framhaldi af því.
Þeir sem hafa áhuga á að verða tilnefndir til kjörs á kjördæmisfundi þurfa að hafa samband við sóknarnefnd sína fyrir 1. mars 2010. Sóknarnefnd er heimilt en ekki skylt að verða við þeim tilmælum.
Auk þeirra sem kunna að hafa boðið hafa sig fram við sóknarnefnd getur sóknarnefnd í hverju kjördæmi tilnefnt kjörgenga menn til kjörs til kirkjuþings og skilar fulltrúi sóknarinnar á kjördæmisfundi þeim tilnefningum inn á fundinn.
Anna Guðrún Björnsdóttir, 16/2 2010 15.32