Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Þingslitaræða forseta

Virðulega kirkjuþing.

Nú er komið að leikslokum á kirkjuþingi 2009, hinu síðasta á kjörtímabilinu. „Guð mun ráða hvar við dönsum næstu jól“ segir í þjóðvísunni. Við vitum ekki á þessari stundu hverjir koma saman til kirkjuþings að ári – það ræðst ekki fyrr en á vordögum. Sum okkar munu vafalaust sækjast eftir endurkjöri en ekki er víst að allir hafi þar erindi sem erfiði. Önnur okkar munu ekki gefa kost á sér til setu á kirkjuþingi að nýju og hefur þar hver sínar gildu ástæður. Hvernig sem þessu verður háttað hljótum við öll að binda vonir við að kirkjuþing og kirkjuráð verði vel skipað á næsta kjörtímabili þar sem saman fari reynsla og þekking, eldmóður og virðing fyrir jafnri stöðu kvenna og karla.

Fyrir þetta kirkjuþing voru lögð 28 mál. Níu þeirra voru þingmannamál, kirkjuráð flutti 14 mál, biskup Íslands tvö mál, forsætisnefnd eitt mál og dómsmála- og mannréttindaráðherra eitt mál. Á þinginu sjálfu hefur löggjafarnefnd flutt eitt mál. Verkaskiptingu nefnda var þannig háttað að allsherjarnefnd fékk níu mál til meðferðar, fjárhagsnefnd tíu mál og löggjafarnefnd átta mál, þar á meðal afar erfitt og umdeilt mál um sameiningu prestakalla og prófastsdæma. Kirkjuþing hefur afgreitt þessi mál með níu starfsreglum og 19 þingsályktunum. Eitt mál frá kirkjuráði var fellt við fyrri umræðu. Á þinginu voru haldnar 344 ræður, 254 ræður við setningu kirkjuþings og fyrri umræðu þingmála og 90 ræður við síðari umræðu. Til gamans má geta þess að á kirkjuþingi 2008 voru haldnar 324 ræður að aukaþinginu meðtöldu eða 20 færri ræður en á þessu þingi.

Á kirkjuþingi reynir mjög á samstöðu og samtakamátt, samstöðu um ákvarðanir sem eru oft á tíðum erfiðar en óhjákvæmilegar og samtakamátt um afgreiðslu þeirra þingmála, sem eru þjóðkirkjunni til gagns og heilla. Vitaskuld fá ekki allir framgengt öllum hugðarefnum sínum og áhugamálum. Það eru mér þannig vonbrigði að sú hugmynd, sem ég setti fram við setningu þingsins um almennan kosningarétt þjóðkirkjufólks til kirkjuþings skyldi ekki fá framgang hér á þinginu þar sem það þingmál, sem þessi hugmynd gat tengst, var fellt við fyrri umræðu og komst þannig ekki til umfjöllunar í löggjafarnefnd. Ég fagna hins vegar þeirri ályktun kirkjuþings, sem allsherjarnefnd lagði fram, að kannaðar verði leiðir til að rýmka kosningarétt til kirkjuþings og auka á þann hátt lýðræði innan þjóðkirkjunnar. Ég tel engan vafa leika á því að kirkjuþing muni fyrr en síðar bera gæfu til að styrkja enn frekar lýðræði innan þjóðkirkjunnar, meðal annars með því að kalla þjóðkirkjufólk almennt til ábyrgðar og ákvarðanatöku um þessa mikilvægu stofnun þjóðkirkjunnar.

Við setningu kirkjuþings greindi ég frá afdrifum þess frumvarps til nýrra þjóðkirkjulaga, sem kirkjuþing samþykkti á síðasta ári en hefur ekki enn verið lagt fyrir Alþingi þrátt fyrir góðan vilja fyrrverandi og núverandi ráðherra kirkjumála. Ég sagði þar á grundvelli raunsæismats að enn væri talið hyggilegra að láta málið hvíla um sinn. Þessi orð mín má ekki misskilja þannig að ég hafi gefið þetta frumvarp upp á bátinn – því fer víðs fjarri. Ég mun að sjálfsögðu fylgjast með framvindu mála en ráðherra sagðist á setningarfundinum hafa fullan hug á að leggja frumvarpið fram og freista þess að vinna því fylgi en eins og forgangsröð verkefna væri nú háttað gæti ekki orðið af því fyrr en í fyrsta lagi á vorþingi. Það er því gott vegarnesti, sem kirkjuþing hefur samþykkt að frumkvæði allsherjarnefndar, að hvetja til þess að frumvarpið fái eðlilegan framgang. Við biskup Íslands og kirkjuráð munum í sameiningu meta hvort lag verði til að knýja á um framgang málsins á vorþingi Alþingis. Ef svo verður ekki kemur þetta þýðingarmikla mál til kasta nýs kirkjuþings á hausti komanda.

Ég vil að lokum þakka kirkjuþingsmönnum öllum fyrir góðar samverustundir á þessu þingi og fyrri þingum kjörtímabilsins, málefnalegar umræður og vönduð vinnubrögð. Sum þeirra, sem nú hverfa af þingi, eiga að baki langa þingsetu og margs konar eljuverk, sem hér skulu sérstaklega þökkuð að verðleikum án þess að ég geti nefnt einstök nöfn. Hinu sama gegnir um starfsmenn þingsins, þeir eiga miklar þakkir skyldar fyrir framúrskarandi störf sín og samviskusemi. Húsráðendum hér og starfsfólki þakka ég hlýhug og velvild í garð kirkjuþings. Hjálparstarfi kirkjunnar, sem hér er einnig til húsa, bið ég sérstakrar blessunar í knýjandi störfum á þrengingartíð. Ég óska ykkur öllum góðrar heimferðar og heimkomu í þeirri einlægu von að störf þessa kirkjuþings verði þjóðkirkjunni til styrktar og farsældar. Höfum í huga þessa ferðabæn úr sálmi Sigurbjörns biskups:

Ég legg í þína helgu hönd
hjartað, ástvini, líf og önd,
ljós þinna orða, andi þinn
upplýsi sál og veginn minn.

Kirkjuþingi 2009 er slitið.