Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Frekari sameiningar prófastsdæma fyrirhugaðar

Meirihluti löggjafanefnd lagði fyrir kirkjuþing 2009 þingsályktunartillögu til kynningar í héruðum og var hún samþykkt:

Kirkjuþing samþykkir að fela kirkjuráði að kynna eftirfarandi tillögur að breytingu á
ákvæðum 12. gr. í starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007 og ákvæðum 1. gr. í starfsreglum um prófasta nr. 966/2006 á héraðsfundum viðkomandi prófastsdæma. Tillögurnar verði að lagðar fyrir kirkjuþing 2010 til afgreiðslu með umsögnum héraðsfundanna.

1. gr.
Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi
Staðastaðarprestakall sameinist Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli. Breytingin taki gildi við starfslok þess sóknarprests er fyrr lætur af embætti.

2. gr.
Borgarfjarðarprófastsdæmi og Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi sameinist. Heiti hins sameinaða prófastsdæmis verði Vesturlandsprófastsdæmi.

3. gr.
Eyjafjarðaprófastsdæmi og Þingeyjarprófastsdæmi sameinist. Heiti hins
sameinaða prófastsdæmis verði Eyjarfjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.

4. gr.
Múlaprófastsdæmi og Austfjarðarprófastsdæmi sameinist. Heiti hins
sameinaða prófastsdæmis verði Múlaprófastsdæmi.

5. gr.
Breytingarnar taki gildi 30. nóvember 2010.

Eftirfarandi tillögur minnihluta löggjafanefndar voru ekki samþykktar:

Borgarfjarðar- og Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi sameinist. Heiti hins nýja prófastsdæmis verði Vesturlandsprófastsdæmi.

Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi sameinist. Heiti hins nýja prófastsdæmis verði Eyjarfjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.

Múla- og Austfjarðarprófastsdæmi sameinist. Heiti hins nýja prófastsdæmis verði Múlaprófastsdæmi.