Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Sameiningar prestakalla og prófastsdæma

Á síðasta fundi kirkjuþings sem lauk ekki fyrr en undir miðnætti fimmtudagskvöld var tekið fyrir 3. mál kirkjuþings, þar sem gerðar eru tillögur um sameiningar prestakalla og prófastsdæma og tilflutning prestakalla milli prófastsdæma. Lögð var áhersla á það í framsögu að Þjóðkirkjan stendur frammi fyrir miklum niðurskurði og gerðar eru kröfur um hagræðingu í stjórnsýslu.

Alls voru samþykktar átta sameiningar prestakalla. Samþykktirnar taka gildi 30. nóvember en aðeins tvær koma til framkvæmda þá þar sem sóknarprestar í öðru þeirra prestakalla er sameinast eiga hafa látið af störfum. Það eru eftirfarandi tillögur:

Árnesprófastsdæmi
Hraungerðisprestakall og Selfossprestakall sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Selfossprestakall.

Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi
Ólafsvíkurprestakall og Ingjaldshólsprestakall sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Ólafsvíkur og Ingjaldshólsprestakall. Prestssetur verði í Ólafsvík.

Samþykkt var að sameina fimm prófastsdæmi í tvö og tekur sú sameining gildi 30. nóvember næstkomandi. Hér er um að ræða eftirfarandi samþykktir:

Húnavatns-og Skagafjarðarprófastsdæmi sameinist. Heiti hins sameinaða prófastsdæmis verði Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi.

Skaftafells-, Rangárvalla- og Árnessprófastsdæmi sameinist. Heiti hins nýja prófastsdæmis verði Suðurprófastsdæmi.

Samþykkt var að Vestmannaeyjaprestakall í Kjalarnessprófastsdæmi tilheyri hinu nýja Suðurprófastsdæmi. Siglufjarðarprestakall í Skagafjarðarprófastsdæmi tilheyri Eyjafjarðarprófastsdæmi og Hólmavíkurprestakall í Húnavatnsprófastsdæmi tilheyri Vestfjarðarprófastsdæmi.

Í Rangárvallaprófastsdæmi var samþykkt að bæirnir Ártún, Bakkakot 1 og 2, Ármót, Fróðholt og Uxahryggur 1 og 2 sem tilheyra Oddasókn tilheyri Akureyjarsókn. Breyting þessi tekur gildi frá 30. nóvember næstkomandi.

Sameiningar prestakalla sem koma til framkvæmda við starfslok presta eru eftirfarandi:

Skaftafellsprófastsdæmi
Kálfafellsstaðarprestakall sameinist Bjarnanesprestakalli. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Bjarnanesprestakall. Prestssetur verði á Höfn.
Samþykkt var ákvæði til bráðabirgða gerir Biskupi Íslands heimilt að ráða héraðsprest í allt að 50% starf er hafi sérstakar skyldur við Bjarnanesprestakall.

Rangárvallaprófastsdæmi
Holtsprestakall sameinist Víkurprestakalli og Breiðabólstaðarprestakalli. Ásólfsskála-, Eyvindarhóla- og Stóra- Dalssóknir tilheyri Víkurprestakalli, Skaftafellsprófastsdæmi. Akureyjar- og Krosssóknir tilheyri Breiðabólsstaðarprestakalli, Rangárvallaprófastsdæmi.

Árnessprófastsdæmi
Mosfellsprestakall og Skálholtsprestakall sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Skálholtsprestakall. Prestssetur verði í Skálholti.

Stóra-Núpsprestakall og Hrunaprestakall sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Hrunaprestakall. Prestssetur verði að Hruna.

Vestfjarðaprófastsdæmi
Staðarprestakall og Þingeyrarprestakall, sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Þingeyrarprestakall. Prestssetur verði á Þingeyri.
Súðavíkur,- Vatnsfjarðar- og Ögursóknir tilheyri Holtsprestakalli.

Eyjafjarðarprófastsdæmi
Hríseyjarprestakall og Möðruvallaprestakall sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Möðruvallaprestakall. Prestssetur verði að Möðruvöllum í Hörgárdal.