Biskupsstofa
Laugavegi 31, 150 Rvk.
Sími 528 4000, fax 528 4098
kirkjan@kirkjan.is

Kirkjuþing í Grensáskirkju
Háaleitisbraut 66, 108 Rvk.
Sími 856 1507
kirkjuthing@kirkjan.is

Leiðarstýring

Umræða um 3. mál stendur yfir. Löggjafanefnd klofnaði í ályktun sinni.

3. mál Tillaga um starfsreglur um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr.

1026/2007.

Löggjafanefnd klofnaði í áliti sínu um 3ja mál. Vildi minnihluti að auk breytingartillagna meirihluta nefndarinnar yrði gengið lengra í sameiningum prófastsdæma.

Sr. Kristján Björnsson flutti breytingartillögu meirihlutanefndar löggjafanefndar og sameiginlegar tillögur löggjafanefndar. Breytingarnar eru við þingskjal 3, sem er tillaga biskupafundar.

Löggjafanefnd flutti fyrst tillögu um breytingu á starfsreglum um prófasts nr. 966/2006, sem gerir ráð fyrir að heiti prófastsdæma breytist til samræmis við aðrar breytingar á starfsreglum.

Síðan var flutt breytingatillaga við tillögu biskupafundar í 3. máli.

Öll löggjafanefnd var sammála um eftirfarandi breytingartillögur:

Skaftafellsprófastsdæmi
Bjarnanesprestakall. Prestssetur: Höfn í Hornafirði. 1 prestsembætti.
Ákvæði til bráðabirgða gerir Biskupi Íslands heimilt að ráða héraðsprest í allt að 50% starf er hafi sérstakar skyldur við Bjarnanesprestakall.

Rangárvallaprófastsdæmi
Holtsprestakall sameinist Víkurprestakalli og Breiðabólstaðarkalli. Ásólfsskála-, Eyvindarhóla- og Stóra- Dalssóknir tilheyri Víkurprestakalli, Skaftafellsprófastsdæmi. Akureyjar- og Krosssóknir tilheyri Breiðabólsstaðarprestakalli, Rangárvallaprófastsdæmi.

Árnesprófastsdæmi
Hraungerðisprestakall og Selfossprestakall sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Selfossprestakall.
Ákvæði til bráðabirgða: Þrátt fyrir ákvæði 1. ml., 3. gr. á þingskjali 3 skal ákvæði 12. gr. starfsreglnanna um sameiningu Hraungerðis- og Selfossprestakalls taka gildi 1. júlí 2010.
2. málsliður sömu greinar segir að sameiningar prestakalla komi til framkvæmda við starfslok þess sóknarprests sem fyrr lætur af embætti. Það ákvæði tekur því gildi í júlí.

Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi
Ólafsvíkurprestakall og Ingjaldshólsprestakall sameinist. Heiti hins sameinaða prestakalls verði Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakall. Prestssetur verði í Ólafsvík.

Austfjarðarprófastsdæmi
Prestssetur í Kolfreyjustaðaprestakalli verði að Búðum.

Skaftafells-, Rangárvalla- og Árnessprófastsdæmi sameinist. Heiti hins nýja prófastsdæmis verði Suðurprófastsdæmi.

Kjalarnessprófastsdæmi
Vestmannaeyjaprestakall tilheyri Suðurprófastsdæmi.

Húnavatnsprófastsdæmi
Hólmavíkurprestakall tilheyri Vestfjarðarprófastsdæmi.

Bent skal á að aðrar tillögur í 3. máli koma til samþykktar óbreyttar.

Að auki lagði meirihluti nefndarinnar fram eftirfarandi sem þingsályktunartillögu til kynningar í héruðum:

Kirkjuþing samþykkir að fela kirkjuráði að kynna eftirfarandi tillögur að breytingu á
ákvæðum 12. gr. í starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007 og ákvæðum 1. gr. í starfsreglum um prófasta nr. 966/2006 á héraðsfundum viðkomandi prófastsdæma. Tillögurnar verði að lagðar fyrir kirkjuþing 2010 til afgreiðslu með umsögnum héraðsfundanna.

1. gr.
Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi
Staðastaðarprestakall sameinist Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli. Breytingin taki gildi við starfslok þess sóknarprests er fyrr lætur af embætti.

2. gr.
Borgarfjarðarprófastsdæmi og Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi sameinist. Heiti hins sameinaða prófastsdæmis verði Vesturlandsprófastsdæmi.

3. gr.
Eyjafjarðarpófastsdæmi og Þingeyjarprófastsdæmi sameinist. Heiti hins
sameinaða prófastsdæmis verði Eyjarfjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.

4. gr.
Múlaprófastsdæmi og Austfjarðarprófastsdæmi sameinist. Heiti hins
sameinaða prófastsdæmis verði Múlaprófastsdæmi.

5. gr.
Breytingarnar taki gildi 30. nóvember 2010.

Athugasemdir:
Fyrir kirkjuþing 2009 voru lagðar fram tillögur og fjallað um allmargar leiðir til að mæta hagræðingarkröfu ríkisins í kjölfar mikilla efnahagsþrenginga eftir hrunið á fjármálamarkaði.

Meðal annars voru lagðar fram tillögur um breytingar á skipan prestakalla- og prófastsdæma sem fólu í sér sameiningu prófastsdæma á Suður- og Norðvesturlandi.

Framsögumaður sagði að öllum þessum tillögum hafi verið mótmælt en nauðsynlegt væri að
spara og endurskipuleggja og hér væri ekki gengið á grunnþjónustu. Hvatti hann þingmenn til að skoða tillögurnar í heild.

Ásbjörn Jónsson flutti framsögu minnihluta löggjafarnefndar.

Viðbótartillaga við tillögu að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007 á þskj. 3 og breytingartillögu löggjafarnefndar á þskj. 71.

Borgarfjarðar- og Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi sameinist. Heiti hins nýja prófastsdæmis verði Vesturlandsprófastsdæmi.

Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi sameinist. Heiti hins nýja prófastsdæmis verði Eyjarfjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.

Múla- og Austfjarðarprófastsdæmi sameinist. Heiti hins nýja prófastsdæmis verði Múlaprófastsdæmi.

Framsögumaður sagði að að baki þessu liggi hugmynd um einn prófast í hverju kjördæmi. Með
þessu móti má leita hagræðingar án þess að skera niður eða skerða grunnþjónustu. Þessi mál voru kynnt árið 2005. Benti hann á að kirkjuþing hefði í raun vald til að samþykkja þessa tillögu minnihlutans án frekari kynningar í prófastsdæmum.